
allt að 80 gestir
Gamla frystihúsið
Eyrarbakki á eitt af mörgum frystihúsum sem tímans tönn hefur gert úreld. Hrár salurinn, þar sem afli dagsins var áður unninn, er nú heillandi og fallegur vettvangur fyrir tónlist og sagnamennsku.
Staðir
Eyrarbakki
Saga Musica er oft flutt fyrir hópa sem bóka beint eða í gegnum hótel og ferðaskrifstofur. Sýningin passar einstaklega vel með kvöldverði, t.d. hjá samstarfsaðilum okkar á Rauða Húsinu á Eyrarbakka.


allt að 80 gestir
Eyrarbakki á eitt af mörgum frystihúsum sem tímans tönn hefur gert úreld. Hrár salurinn, þar sem afli dagsins var áður unninn, er nú heillandi og fallegur vettvangur fyrir tónlist og sagnamennsku.

allt að 50 gestir
Við vinnum oft með vinum okkar á Rauða Húsinu, frábærum veitingastað. Í Norðursalnum á efstu hæð setjum við upp sviðið. Salurinn er lýstur kertum og lömpum á veturna en miðnætursólin lýsir hann upp á sumrin.
Matseðill Rauða Hússins ↗
allt að 18 gestir
Við búum og störfum í Bakkastofu, rúmlega aldargömlu húsi með einstaklega góða áru. Hér tökum við á móti litlum hópum. Tónlist og sagnamennska kynslóðanna eru í forgrunni og nægt rými gefst fyrir afslappað spjall.
bakkastofa.com ↗Bókanir
Samtals um 2 klukkustundir
Bakkastofa
bakkastofa.com
Bakkastofa er heimili listamannanna Ástu og Valgeirs. Þau nýta það einnig sem vettvang fyrir litla, sérvalda hópa (mest 18 manns) til að njóta fjölbreyttrar menningardagskrár.
Hlýlegt og velkomið andrúmsloftið höfðar til gesta sem eiga auðvelt með að tengjast afslöppuðu umhverfinu. Í tónlist og sagnastundum er lögð áhersla á gagnvirkt og óformlegt andrúmsloft þar sem spurningar og umræður eru velkomnar.
Þorpið Eyrarbakki er rólegt sjávarþorp þar sem margir listamenn kjósa að dvelja og starfa. Það liggur á svæði þar sem nokkrar af mikilvægustu Íslendingasögunum gerðust.
Við getum einnig skipulagt heimsóknir að perlum Eyrarbakka: fallegu kirkjunni með sinn einstaka hljómburð, Húsinu – byggðasafni þar sem arfleifð langalangömmu og -afa Ástu er varðveitt, tveimur ágætum veitingastöðum þorpsins og auðvitað þorpinu sjálfu og náttúrunni umhverfis.
Bókanir
Eyrarbakki
Saga Musica er oft flutt fyrir hópa sem bóka beint eða í gegnum hótel og ferðaskrifstofur. Sýningin passar einstaklega vel með kvöldverði.
Hringja: +354 821 2428